Færsluflokkur: Tölvur og tækni

Hvernig maður breytir NES tölvu til að spila alla leiki

Í seinustu færslu lýsti ég vonbrigðum mínum yfir því að hafa óvart keypt bandaríska NES leiki í Geisladiskabúð Valda. Ég, og sennilega flestir sem eiga NES tölvu á Íslandi, erum með evrópsku útgáfuna sem notast við PAL kerfið, en bandarísku tölvurnar og leikirnir notast við NTSC kerfið. Án þess að ég fari út í of tæknilegar útskýringar á mismuninum á þessum kerfum, þá get ég sagt að þau virka jafnan ekki með hvor öðru. Sem sagt PAL leikir virka ekki á NTSC tölvu og NTSC leikir virka ekki á PAL tölvu. Þegar NTSC leikur er settur í PAL tölvu, sér maður leiknum bregða fyrir á skjánum í eina sekúndu og hverfa svo aftur. Á sama tíma blikkar rauða ljósið framan á NES tölvunni sem gefur til kynna að eitthvað er að. Það sem veldur þessu er lítil örflaga á móðurborði NES tölvunnar sem kallast á ensku; The NES lockout chip. Þessi flaga les leikina sem settir eru í tölvuna til að sjá hvaða kerfi þeir eru gerðir fyrir. Ef kerfi tölvunnar og leiksins eru ekki sambærileg, leyfir flagan ekki tölvunni að spila leikinn.

computer says no"Computer says No"

En það er leið til þess að gera þessa flögu óvirka svo að tölvan geti spilað hvaða leiki sem er óháð kerfi. Ég fór þessa leið eftir að ég komst að því að leikirnir sem ég keypti um daginn voru bandarískir, og í þessari færslu ætla ég að kenna þér lesandi góður að gera slíkt hið sama ef þú átt NES tölvu. 

Ég ætla þó að taka fram áður en lengra er haldið, að ef þú ætlar að gera þetta við tölvuna þína þá get ég ekki tekið ábyrgð á því ef eitthvað skemmist. Ég bý ekki yfir neinni tæknilegri þekkingu eða hæfni og tókst að gera þetta, þannig að flestir ættu að geta gert þetta sjálfir, en ef þú treystir þér ekki í að gera þetta þá er bara betra að sleppa því eða fá einhvern með smá tæknikunnáttu til að hjálpa þér við þetta. Það fylgja myndir með til útskýringar, athugið að það er hægt að smella á myndirnar til að sjá stærri útgáfur (það er í raun nauðsynlegt til að sjá þetta nægilega vel). Ég verð samt að afsaka myndagæðin, ég á því miður ekki nægilega góða myndavél til að taka myndir af svona smáum hlutum. En vindum okkur í þetta!

Það sem þarf til að gera breytinguna er eftirfarandi:
1x Langt meðalstórt stjörnuskrúfjárn (ekki verra ef það er segulmagnað).
1x Smáar beittar klippur eða hníf (ég átti ekki nægilega smáar klippur þannig ég notaði dúkahníf).

Svo er ekki verra að hafa góða lýsingu, stöðugt vinnuborð, dollu til að geyma skrúfur og smá þolinmæði.

                                                     Fyrsta skref
Nesmod1Takið NES tölvuna ykkar og komið henni fyrir á þægilegum stað. Ef tölvan er rykug eins og mín var, þá er ekki óvitlaust að þurrka aðeins af henni til þess að rykið smitist ekki inn á móðurborðið eða hylkishaldarann meðan þið eruð að vinna í henni.
 
Annað skref
Nesmod2 Snúið tölvunni á hvolf. Losið skrúfurnar sex sem halda tölvukassanum saman. Skrúfurnar eru merktar inn á myndina með rauðum hringjum. Takið síðan tölvukassann í sundur.
 
Þriðja skref
Nesmod3 Nú ættuð þið að sjá innviði tölvunnar. Það sem þarf að gera núna er að losa álhlífina sem umlykur hylkishaldarann. Skrúfurnar sem þarf að losa eru merktar inn á myndina (athugið samt að ég gæti hafa gleymt að merkja einhverjar skrúfur, losið einfaldlega allar skrúfur sem þið sjáið, því á endanum verðið þið búin að losa allar skrúfur í tölvunni hvort sem er). Takið síðan álhlífina af.
 
Fjórða skref (Má sleppa) Nesmod4Nú ættuð þið að vera búin að finna stöðluðu Nintendo viðhaldsbjölluna. Ef hún er dauð; EKKI ÖRVÆNTA! Hún er sennilega búin að verpa undir hljóðflögunni, og nýjar bjöllur ættu að klekjast þegar straum er hleyft á á ný. Fjarlægið allar dauðar bjöllur og gefið þeim viðeigandi útför.
 
Fimmta skref
Nesmod5Þegar álhlífin er farinn ættuð þið að sjá hylkishaldarann í allri sinni dýrð. Ýtið honum upp og niður nokkrum sinnum til að fullnægja forvitni ykkar um hvernig innviði NES tölvunnar virka. Að því loknu losið allar skrúfur sem halda hylkishaldaranum föstum. Skrúfurnar eru merktar inn á myndina. Athugið að tvær skrúfurnar eru aðeins lengri en allar skrúfurnar hingað til. Leggið á minnið hvar þær fara svo tölvan fari rétt saman aftur. Þegar hylkishaldarinn er laus, þá getið þið rennt honum út. Þetta gæti þarfnast þess að beygja plastið örlítið, ekki hafa áhyggjur, tölvan er sterkbyggðari en þið haldið, þetta á ekki að valda neinum skemmdum.
 
Sjötta skref
Nesmod6 Núna ættuð þið að sjá í bakið á móðurborðinu, en það er í raun á hvolfi innan í tölvunni. Losið allar skrúfur sem þið sjáið að eru eftir, þá ætti móðurborðið að vera laust. Athugið að það eru ennþá tengdir vírar við móðurborðið sem liggja í fjarstýringainnstungurnar og í afltakkanna framan á tölvunni. Ég aftengdi ekki víranna því ég treysti mér ekki til þess, en ef þið gerið það ætti öll meðferð móðurborðsins að vera auðveldari. Lyftið nú móðurborðinu varlega upp. Undir því ætti að vera önnur álhlíf sem ætti að vera laus, fyrir utan nokkra víra sem ganga í gegnum hana. Smokrið hlífinni varlega af og passið að skemma ekki neitt. Þessi partur gæti þarfnast smá þolinmæði og rýmisgreindar.
 
Áttunda skref
Nesmod7 Þegar hlífin er laus frá móðurborðinu leggið þá móðurborðið þannig að það sé stöðugt, og helst þannig að ekkert af pinnunum undir því snerti neitt. Ég stillti því upp á lausa partinum af tölvukassanum.
 
 Níunda skref
Nesmod8Núna ætti móðurborðið að blasa við ykkur. Þetta er NES tölvan. Falleg, ekki satt? Flagan sem þið eruð að leita að er merkt inn á myndina. Á henni ætti að standa: 3195A - 1986 Nintendo - 9134 C. Þetta gæti þó verið breytilegt eftir því hvaða týpu af tölvu þið eruð með, þetta stendur alla veganna á flögunni inni í minni tölvu. 
 
Tíunda skref
Nesmod9Þegar þið eruð búin að finna flöguna, skoðið hana þá vel. Þetta er tækið sem leyfir ykkur ekki að spila allt sem þið viljið. Á flögunni eru 16 flipar sem ganga inn í móðurborðið, finnið fjórða flipann (merktur inn á myndina). Þennan flipa verðið þið að losa frá móðurborðinu og beygja upp. Ég notaði dúkahníf, en smáar klippur ættu í raun að vera betra. Ef þið eigið lóðbolta þá væri sennilega best að losa flipann frá þannig. Brúni púðinn og bláu tunnurnar við hliðina á flögunni eiga það til að vera fyrir. Það er hægt að beygja þá aðeins frá en farið varlega! Ef þið beygið þá of langt gætu vírarnir brotnað og þá þurfið þið lóðbolta til að laga tölvuna. Ég beygði draslið á minni tölvu alveg þangað til það hallaði aðeins frá flögunni og það slapp hjá mér. 
 
Elllefta skref Nesmod10Núna ætti fjórði flipinn að vera laus frá móðurborðinu. Beygið hann upp og passið að hann snerti ekkert sem gæti gefið honum afl, því það gæti valdið skammhlaupi í tölvunni. Passið einnig að allir vírar og kubbar sem eru ekki einangraðir séu ekki í snertingu við hvorn annan. Ef þið viljið vera örugg þá væri ekki vitlaust að leiða flipann í jarðtengingu, en það er ekki nauðsynlegt (ég gerði það ekki). Núna er óhætt að setja tölvuna saman aftur.
 
Tólfta skref
Nesmod11Þú átt skilið Thule! (eða einhvern annan drykk sem þér finnst góður). Núna ætti NES tölvan þín að geta spilað leiki frá hvaða kerfi sem er, og líka Pirated NES leiki. Þó eru sumir leikir úr öðrum kerfum sem eiga ekki eftir að virka 100% rétt, en eg hef heyrt að alla vegana 90% af leikjum eigi ekki eftir að vera neitt öðruvísi. Sumir leikir gætu þó blikkað aðeins eða ekki litið alveg rétt út, en sem betur fer virka leikirnir þrír sem ég keypti hjá Valda 100% rétt!
 
Vonandi kemur þetta einhverjum að góðum notum. Ef þú notaðir þetta blogg til að breyta tölvunni þinni þá hefði ég mjög gaman af að heyra af því í athugasemda kerfinu við þessa færslu. En núna er kominn tími til að ég fari og spili eitthvað af þessum amerísku leikjum!

Takk fyrir lesturinn!


Leiðbeiningarnar sem ég notaði við mínar breytingar má finna hér.

Famiklónar og af hverju ég safna Famicom leikjum

Í færslu seinasta mánudags kom ég örstutt inn á munin á Family Computer (Famicom) og Nintendo Entertainment System (NES). Það var samt aðeins toppurinn á ísjakanum eins og er sagt, því fjölmargir fleiri hlutir greina þessar tölvur að. Í rauninni mætti segja að Famicom og NES tölvurnar séu eins og tvíburar sem voru skildir að við fæðingu. Einn tvíburinn var alinn upp í fátækrahverfi þar sem hann var daglega misnotaður og rændur, en lærði þó heilmikið af reynslu sinni og varð við það að betri manneskju. Hinn tvíburinn aldist upp hjá ríkum foreldrum sem ofvernduðu hann. Hann fékk allt flottasta dótið en mátti ekki fara út að leika sér með hinum krökkunum því þeir gætu haft vond áhrif á hann. Fyrri tvíburinn er Famicom, sá seinni er NES.

it takes twoEkki ósvipað söguþræðinum í It Takes Two með Olsen tvíburunum.

Þó svo að báðar vélarnar notist við sömu tæknina þá er einn stór munur á þeim. NES tölvan var með lítið tæki sem kallast NES Lockout Chip. Í hvert skipti sem leikur er settur inn í NES tölvuna kannar tækið hvort leikurinn sé gefin út af Nintendo, ef svo var ekki virkaði leikurinn ekki á tölvunni. Famicom tölvan var ekki með svona Lockout Chip, sem gerði fullt af öðrum fyrirtækjum kleift að búa til sína eigin leiki og gefa þá út í óþökk Nintendo. Þó var algengara að þessi ólöglegu fyrirtæki stálu áður útgefnum leikjum, breyttu þeim örlítið og gáfu þá út sem nýja leiki. Slík fyrirtæki eru almennt kölluð "Pirates", sem þýðir á Íslensku sjóræningjar, en þar sem það orð er of gildishlaðið til að nota í þessu samhengi held ég mig við enska orðið. 

pirate"Fulla ferð áfram! Famicom leikir framundan! Arrr!"

Pirate fyrirtækin stoppuðu þó ekki við einfaldan hugbúnaðarþjófnað. Fyrirtæki í Tævan, Kína, Póllandi, Rússlandi, S-Ameríku og víðar hófu framleiðslu á sínum eigin Famicom tölvum sem eru jafnan kallaðar famiclones, eða famiklónar. Famiklónar líkt og pirate leikirnir, voru seldir fyrir brot af verðinu sem alvöru Nintendo vottuð vara kostaði. Mismunurinn á framleiðslukostnaði og sú staðreynd að verið var að endurbyggja stolna tækni, kom að sjálfsögðu niður á gæðum vörunnar sem pirate fyrirtækin framleiddu. Pirate leikir eru oft illa forritaðir og rafeindaborðin inni í leikjahylkjunum eru jafnan búin til úr síðri efnum en alvöru Nintendo leikirnir. Þetta leiðir oft til þess að pirate leikir endast ekki eins lengi og Nintendo vottaðir Famicom leikir, og þeir eru líklegri til að hafa forritunargalla sem geta gert þá óspilanlega. Famiklónarnir höfðu líka ýmsa galla. Tölvuíhlutirnir inni í famiklónunum voru oft byggðir á svokallaðri NOAC tækni, sem stendur fyrir NES On A Chip. Án þess að ég fari út í of tæknilega hluti þá get ég sagt að NOAC famiklónar hafa mun síðri getu til að spila leiki vegna þess að öll tölvan er samansoðin á einn tölvukubb, í stað þess að hafa einn kubb fyrir hljóð, einn fyrir minni o.s.frv. Þeir spila suma leiki fínt, aðrir spilast aðeins hægar eða með lélegri hljóm- og myndgæðum, en suma leiki eru þeir einfaldlega ófærir um að spila. Þetta á að sjálfsögðu ekki við allt sem pirates hafa framleitt. Sumir pirate leikir eru pottþéttir og í ekkert síðri gæðum en venjulegir Famicom leikir. Þetta á ekki eins vel við famiklónana. Flestir famiklónar eru mun síðri en alvöru Famicom tölvur, og ég held ég geti jafnvel fullyrt að engin famiklón sé betri eða jafn góður og alvöru tækið.

Jango Fett, The Source Of The Grand ArmyÁ sama hátt og klónahermenn eru ömurlegir miðað við Jango Fett.

Tökum umræðuna aðeins hingað heim á klakann. Í kringum 1990 voru NES tölvur farnar að ryðja sér til rúms á mörgum íslenskum heimilum. Allir krakkar á þessum tíma áttu annað hvort svona tölvu eða þekktu einhvern sem átti svona tölvu. Ég var í seinni hópnum, ég þekkti fullt af krökkum sem áttu NES tölvur en átti ekki slíka sjálfur. Ég var samt ekki tölvulaus, því ég var einn af þessum fáu krökkum sem áttu famiklón tölvu. Famiklón tölvan sem virðist hafa verið einráð á markaðnum hér á Íslandi var Family Game tölvan, en hún var framleidd af NTDEC, argentínsku pirate fyrirtæki. Þar sem Ísland var inn á skandinavíska NES markaðnum voru aldrei fluttir inn alvöru Nintendo Famicom leikir hingað. Allir Famicom leikir sem voru seldir hérna heima voru þar af leiðandi pirate leikir, og voru sennilega flestir framleiddir af NTDEC líka.

NTDECclone3Gamall kassi utan af NTDEC Family Game tölvu

NTDEC klónarnir voru fluttir inn af Alefli og voru meðal annars seldir í Radionaust og Miklagarði. Í auglýsingu sem birtist í daglblaðinu Dagur árið 1991, má sjá að ný NTDEC tölva var seld á 8.990kr, en NES tölvur kostuðu þá í kringum 14.000kr, en árið á undan kostuðu þær 24.000kr. Í stuttum pistli sem var birtur í Pressunni 4. janúar 1991, kemur fram að hátt í 3000 NES tölvur hafi selst fyrir jólin, en þar láta líka umboðsaðilar Nintendo á Íslandi óánægju sína í ljós með innflutning og sölu á famiklónum:

 „Hljómco mun ekki vilja una því að fyrirtækið Alefli kaupi inn og selji á markaði hér það sem þeir telja vera eftirlíkingar af leikjatölvunni [NES] ... Hljómco-menn segja að eftirlíkingin svari engan veginn þeim kröfum sem gera verði til tækjanna, kerfið sé ekki nógu öflugt fyrir Nintendo leikina. Það var Mikligarður sem sá um söluna á þessum tækjum fyrir jólin, og bauð mun lægra verð en Hljómco og aðrir sem seldu „orginalinn“ ...“

Hljómco höfðu ekki alveg rétt fyrir sér, Family Game tölvan var ekki eftirlíking af NES heldur Famicom. Varðandi það að "tækið" sé ekki nógu öflugt fyrir Nintendo leikina, þá hefði sú yfirlýsing í flestum tilvikum átt við rök að styðjast, enda er ég búinn að útskýra það að famiklónar eru almennt séð mun verri en alvöru Nintendo framleiðsla. En það vill svo til að NTDEC Family Game er einn albesti famiklón sem framleiddur hefur verið! NTDEC klóninn er nefnilega ekki NOAC klón, heldur svokallaður Full Hardware klón, sem þýðir í raun að hann hefur mjög svipaða tölvunargetu og alvöru Nintendo tölvur. Það er talið að hann geti spilað alla alvöru Nintendo Famicom leiki sem hafa komið út og hann getur meira að segja tengst við aukahluti sem Nintendo gaf út fyrir Famicom tölvuna, eins og t.d. Famicom Disk System viðbótina (meira um hana síðar). Þó eru hljómgæði Family Game tölvunnar ekki eins góð og í alvöru Famicom tölvu og hún var ekki með innbyggðan hljóðnema í seinni stýripinnanum.

FamicomVSFamilyGameTil vinstri; Nintendo Family Computer. Til hægri; NTDEC Family Game.

Þó svo að Family Game tölvan hafi ekki verið nálægt eins vinsæl og NES tölvan hér á Íslandi, voru ýmsir kostir við að eiga slíka tölvu fram yfir það að eiga NES. Fyrir lítinn pening var hægt að kaupa millistykki sem tengdi NES leiki við Family Game tölvuna, þannig að hún gat bæði spilað Famicom leiki og NES leiki. Family Game tölvurnar höfðu líka alræmda "Turbo-takka", sem leyfðu leikmönnum að halda inni tökkunum í staðinn fyrir að hamast á þeim þegar þess var þarfnast í leikjum. Svo ekki sé minnst á verðmuninn á Famicom leikjunum og NES leikjunum. Ef ég man rétt kostuðu nýjir Famicom leikir á milli 1000-2000kr, á meðan NES leikirnir fóru á í kringum 5000kr. 

Auglýsing family gameAuglýsing fyrir NTDEC Family Game í dagblaðinu Dagur 12. mars 1991.

Þetta er í raun ástæðan fyrir því að ég safna fyrst og fremst Famicom leikjum. Aðal ástæðan er náttúrulega sú að ég átti nokkra svona NTDEC leiki og famiklóninn fyrir, og því er viss nostalgía tengd Famicom kerfinu. En þar fyrir utan er töluvert meira úrval ef maður safnar Famicom leikjum á móti því að safna NES leikjum, því allir þessir óendanlega mörgu pirate leikir bætast við. Pirate leikirnir eru líka ekki bundnir við það að vera klónar af japönskum Famicom leikjum, þvert á móti eru þeir margir klónar af NES leikjum og eru þar af leiðandi oft á ensku í stað japönsku. Þar fyrir utan er enn í dag verið að framleiða nýja pirate leiki fyrir Famicom, en það er þó mest megnis fyrir kínverskan markað.

Jæja, þetta er búinn að vera frekar þung og heldur mikið tæknileg bloggfærsla. Lofa að skrifa um eitthvað léttara næst.

Takk fyrir lesturinn!

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband