Í seinustu færslu lýsti ég vonbrigðum mínum yfir því að hafa óvart keypt bandaríska NES leiki í Geisladiskabúð Valda. Ég, og sennilega flestir sem eiga NES tölvu á Íslandi, erum með evrópsku útgáfuna sem notast við PAL kerfið, en bandarísku tölvurnar og leikirnir notast við NTSC kerfið. Án þess að ég fari út í of tæknilegar útskýringar á mismuninum á þessum kerfum, þá get ég sagt að þau virka jafnan ekki með hvor öðru. Sem sagt PAL leikir virka ekki á NTSC tölvu og NTSC leikir virka ekki á PAL tölvu. Þegar NTSC leikur er settur í PAL tölvu, sér maður leiknum bregða fyrir á skjánum í eina sekúndu og hverfa svo aftur. Á sama tíma blikkar rauða ljósið framan á NES tölvunni sem gefur til kynna að eitthvað er að. Það sem veldur þessu er lítil örflaga á móðurborði NES tölvunnar sem kallast á ensku; The NES lockout chip. Þessi flaga les leikina sem settir eru í tölvuna til að sjá hvaða kerfi þeir eru gerðir fyrir. Ef kerfi tölvunnar og leiksins eru ekki sambærileg, leyfir flagan ekki tölvunni að spila leikinn.
En það er leið til þess að gera þessa flögu óvirka svo að tölvan geti spilað hvaða leiki sem er óháð kerfi. Ég fór þessa leið eftir að ég komst að því að leikirnir sem ég keypti um daginn voru bandarískir, og í þessari færslu ætla ég að kenna þér lesandi góður að gera slíkt hið sama ef þú átt NES tölvu.
Ég ætla þó að taka fram áður en lengra er haldið, að ef þú ætlar að gera þetta við tölvuna þína þá get ég ekki tekið ábyrgð á því ef eitthvað skemmist. Ég bý ekki yfir neinni tæknilegri þekkingu eða hæfni og tókst að gera þetta, þannig að flestir ættu að geta gert þetta sjálfir, en ef þú treystir þér ekki í að gera þetta þá er bara betra að sleppa því eða fá einhvern með smá tæknikunnáttu til að hjálpa þér við þetta. Það fylgja myndir með til útskýringar, athugið að það er hægt að smella á myndirnar til að sjá stærri útgáfur (það er í raun nauðsynlegt til að sjá þetta nægilega vel). Ég verð samt að afsaka myndagæðin, ég á því miður ekki nægilega góða myndavél til að taka myndir af svona smáum hlutum. En vindum okkur í þetta!
Það sem þarf til að gera breytinguna er eftirfarandi:
1x Langt meðalstórt stjörnuskrúfjárn (ekki verra ef það er segulmagnað).
1x Smáar beittar klippur eða hníf (ég átti ekki nægilega smáar klippur þannig ég notaði dúkahníf).
Svo er ekki verra að hafa góða lýsingu, stöðugt vinnuborð, dollu til að geyma skrúfur og smá þolinmæði.
Núna ætti móðurborðið að blasa við ykkur. Þetta er NES tölvan. Falleg, ekki satt? Flagan sem þið eruð að leita að er merkt inn á myndina. Á henni ætti að standa: 3195A - 1986 Nintendo - 9134 C. Þetta gæti þó verið breytilegt eftir því hvaða týpu af tölvu þið eruð með, þetta stendur alla veganna á flögunni inni í minni tölvu.
Þegar þið eruð búin að finna flöguna, skoðið hana þá vel. Þetta er tækið sem leyfir ykkur ekki að spila allt sem þið viljið. Á flögunni eru 16 flipar sem ganga inn í móðurborðið, finnið fjórða flipann (merktur inn á myndina). Þennan flipa verðið þið að losa frá móðurborðinu og beygja upp. Ég notaði dúkahníf, en smáar klippur ættu í raun að vera betra. Ef þið eigið lóðbolta þá væri sennilega best að losa flipann frá þannig. Brúni púðinn og bláu tunnurnar við hliðina á flögunni eiga það til að vera fyrir. Það er hægt að beygja þá aðeins frá en farið varlega! Ef þið beygið þá of langt gætu vírarnir brotnað og þá þurfið þið lóðbolta til að laga tölvuna. Ég beygði draslið á minni tölvu alveg þangað til það hallaði aðeins frá flögunni og það slapp hjá mér.
Vonandi kemur þetta einhverjum að góðum notum. Ef þú notaðir þetta blogg til að breyta tölvunni þinni þá hefði ég mjög gaman af að heyra af því í athugasemda kerfinu við þessa færslu. En núna er kominn tími til að ég fari og spili eitthvað af þessum amerísku leikjum!
Takk fyrir lesturinn!
Leiðbeiningarnar sem ég notaði við mínar breytingar má finna hér.
Flokkur: Tölvur og tækni | 2.10.2011 | 18:51 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning